
Laugardaginn 18. febrúar hélt ég upp á 40 ára afmælið mitt. Löngu var ákveðið að halda góða veislu með fjölskyldu og vinum á Hótel Örk. Hófst gamanið kl . 19.30 með fordrykk og síðan var hlaðborð með tapasréttum og ýmsu öðru góðgæti að hætti hótels Arkar. Dessertinn var auðvitað ís frá skreytingadeildinni sem hannaði tvær sérskreyttar tertur og með honum var borið fram kaffi og koníak. Guðrún systir var tilnefnd sem veislustjóri og stóð hún sig frábærlega og nóg að gera hjá henni allt kvöldið. Ýmsir vinir og fjölskyldumeðlimir tróðu upp og héldu ræður eða skemmtu mér og öðrum á annan hátt. Synir mínir héldu þessa líka brillíant ræðu og voru eins og atvinnumenn í ræðuhöldum og komu verulega á óvart. Reyndar gerðu þeir fullmikið úr lofthræðslu minni, að mínu áliti en aðrir höfðu mikið gaman af. Guðbjörg dóttir mín var með dansatriði og sýndi glæsileg spor sem hún er að læra í danskólanum í Reykjavík. Flott hjá krökkunum að troða svona upp fyrir 200 manna veislu. Þegar öllum atriðum var lokið þá var slegið upp balli þar sem hljómsveitin "Á móti sól" kom og spilaði fyrir okkur, án þess að taka nokkra pásu, til kl 3.30. Fólk sló heldur ekki slöku við á dansgólfinu og var það fullt alveg fram á seinustu mínútu. Ofan á þetta allt saman þá fékk ég líka ótrúlega fínar afmælisgjafir sem ég þakka kærlega fyrir. En umfram allt, ógleymanlegur dagur með öllu mínu fólki sem kom svo sannarlega til að skemmta sér.
No comments:
Post a Comment