
Í dag eru synir mínir Hafsteinn og Kristján 17 ára. Já, þeir fæddust árið 1989 og nákvæmlega á þessum tíma sat ég með þá á sitthvorum arminum á Landspítalanum í Reykjavík einungis 50 cm. á lengd, síðan hefur heldur betur tognað út þiem og eru nú að skríða yfir 196 cm. Þar sem ég sat með þá í fanginu fyrir 17 árum hlustuðum ég og mamma þeirra á beina útsendingu í útvarpinu frá París þar sem fram fór B-keppni í handbolta. Ísland vann þar frækilegan sigur á Pólverjum og varð meistari, B-keppninnar (mjög eftirminnilegt). Þannig að sennilega hafa þeir bræður þá strax fengið nasaþefinn af íþróttamaníu fjölskyldunnar og ákveðið að meðtaka boðskapinn í stað þess að streitast á móti. Enda hefur það komið á daginn sem Þórsarar á Akureyri fá að njóta þessi misserin, meðan dvalið er á Akureyri við nám í Menntaskólanum þar.
Fengu þeir bræður senda köku og Ben&Jerry's ís í tilefni dagsins.
Til hamingju með daginn bræður !
No comments:
Post a Comment