13 March 2006

Árshátíð Kjöríss


Árshátíð Kjörís starfsmanna var haldin á laugardagskvöldið 11. mars, í Hótel Dyrhólaey í Mýrdal. Fórum við og hluti hópsins á föstudeginum austur og notuðum laugardaginn til að keyra um og skoða svæðið. Byrjuðum við laugardaginn á að fara út að Dyrhólaey og skoða okkur þar um fórum í fjöruna og var heldur kuldalegt um að litast. Síðan var haldið í Vík og kíktum við í víkurprjón, versluðum sokkar og svo var fengin hressing í Víkurskálanum. Síðan var ákveðið að aka upp á Reynisfjall og litast um þar. Skoðuðum við mannvirkin sem reist voru af ameríska hernum og var lóranstöð í sinni tíð. En er bara yfirgefinn steinkumbaldi eins og er.

Um kvöldið var svo árhátíðin okkar og tókst með afbrigðum vel. Fjöldi skemmtiatriða, eins og ávallt og mikill metnaður í gangi í að gera þetta sem best úr garði. Skorri Aikman var veislustjóri og leysti verkefnið af stakri prýði. Sigurbjörg (Bíbí) Jóhannesdóttir var kjörinn starfsmaður ársins og er vel að tilnefningunni komin þar sem hún er með lengstan starfsaldur í fyrirtækinu og fer senn að kveðja okkur fyrir aldurs sakir.

3 comments:

Anonymous said...

Óskum öllum í fjölskyldunni til hamingju með afmælin sín. Maður veltir fyrir sér hvort það sé alvöru fengitími í þessari stórfjölskyldu!

Anonymous said...

Gaman að sjá hreyfingu á síðunni, ég var farin að gefa upp alla von með að fá nýjustu fréttirnar yfir á hinn landshlutann!
Það er nauðsynlegt fyrir brottflutta að fá fréttir við og við;)

Anonymous said...

blessaður...

viljum minna á þetta...

Snúllabar á laugardaginn 25.mars...

bara að auglýsa okkur;)