
Það fór ekki svo að það væru ekki listamannshæfileikar í fjölskyldunni. Dóttirin er að leika í leikritinu Ronju Ræningjadóttur í Borgarleikhúsinu. Hún fór í prufu fyrir jól og sagði að hún hefði verið best og fengi örugglega hlutverkið. Hvort það var rétt eða ekki þá fékk hún allavega hlutverk grádvergs og leikur einn slíkan ásamt nokkrum öðrum krökkum. Þetta eru frekar óhuggulegar skepnur sem hræða litla áhorfendur í salnum. Og ekki er nokkur leið að þekkja leikarana í gegnum gerfin sem eru vel gerð. En frumsýningin sem var síðasta sunnudag gekk vel og virkilega skemmtileg sýning fyrir alla fjölskylduna. Mælum með henni. Svo þarf grádvergurinn að mæta hálfsmánaðarlega og sinna sinni vinnu meðan á sýningum stendur. Ein gott að eiga afa, ömmu eða frænkur í borginni sem bjarga þegar mikið er að gera hjá foreldrum.
No comments:
Post a Comment