
Jæja, þá kom að því. Aldurinn að færast yfir og óumflýjanlegt að 9. febrúar myndi renna upp. Fertugsafmælið staðreynd. Dagurinn var eftirminnilegur að því leiti að hann fór í að ferðast frá Búkarest í Rúmeníu til Íslands og tók ferðalagið í allt um 15 klst. en við flugum í gegnum Amsterdam og London til að spara !! Dagurinn var hvort sem var ekki notaður í annað. Ég fékk þó morgunmat í rúmið á Marriot hótelinu í Búkarest og áður en við fórum á flugvöllinn þá skáluðu ferðafélagar mínir í Kampavíni með mér.
No comments:
Post a Comment