06 February 2006

Rúmeníuferð


Þá erum við komin til Rúmeníu nánar tiltekið Búkarest. Hér er verið að halda smáþjóðaleika íssölumanna fyrir Unilever. Alltaf gaman að hitta þessa félaga okkar sem eru í bransanum. Búkarest er svo sem svipuð og Zagreb eða Belgrad. Nema Causescu hefur sett mark sitt á borgina á sínum valdatíma. M.a. með byggingu Alþýðuhallarinnar sem er sú næst stærsta í heimi eftir Pentagon. Merkilegt að hún skuli lítið sem ekkert vera notuð. Annars má sjá meiri ferðasögu hjá Aldísi á www.rumenia.blogspot.com.

1 comment:

Anonymous said...

Gaman að sjá að þið skemmtið ykkur vel þarna. Lýsingarnar á ferð ykkar hjá Aldísi eru óborganlegar. Ég skemmti mér konunglega að lesa um ykkur þarna úti:)
Annars vildi ég nú bara óska þér innilega til hamingju með afmælið. Ég hugsa til þín þarna úti í dag og sendi þér knús og kossa.
Luv litla sis