Hátíðin "blóm í bæ" var haldin í Hveragerði helgina 26.-28. júní. Búið var að gera bæinn okkar sem glæsilegastan og voru blómasýningar og allskyns uppákomur um allan bæ. Frábært veður var alla dagana og stanslaus traffík af fólki.
Veitt voru verðlaun fyrir sólblómaræktun og hlaut Hafrún Helgadóttir Kemp verðlaun fyrir stærsta sólblómið. Hafrún var á Austurlandinu og tók Guðbjörg frænka hennar við verðlaununum frá forsetafrúnni okkar Dorrit Moussaieff.
No comments:
Post a Comment