
Ekki líður ár, án þess að farið er á Kópasker. Dvalið var í Víðihóli á sólstöðudögum og sóttar ýmsar samkomur sem í boði voru þessa helgi. Vorum við með Kjarnafjölskyldunni sem var á heimavelli. Farið var í kvennahlaupið, sólstöðugögnu á Núpinn, buggðasafnið, skjálftasafnið og IST-listagallerí. Einnig var varið á tónlistar gjörning sem var í skjálftasafni en endaði út við vita í frábærri miðnætursól. Á sunnudegi, messa í Snartastaðakirkju og kvenfélagskaffi á eftir. Jói skiptinemi fann partí á laugardagskvöldinu og var lengi ! Það sannast alltaf betur að Kópasker frábær staður.
No comments:
Post a Comment