19 June 2009

Hafsteinn og Kristján stúdent frá MA


Mikilvægasti hluti ferðar okkar norður var, að sjálfsögðu, að vera við útskrift sona okkar þann 17. júní frá Menntaskólanum á Akureyri. Eftir talsverðan undirbúning þar sem helsta áhyggjuefnið var að fá nógu stór föt á piltana, en það rétt bjargaðist í tæka tíð. Hófst þessi skemmtilegi dagur með útsriftinni í Höllinni kl 10 um morguninn, Jón Már skólameistari stýrði samkomunni sem var ákaflega hátíðleg. Eftir athöfnina fóru nýstúdentar í myndatöku í Stefánslundi þar sem Páll ljósmyndari fór hamförum í myndatökum. Stúdentsveisla var svo haldin í íbúðinni í Hrísalundi þar sem mættu vel á fimmta tug fólk, þótt ótrúlegt sé í þessa litlu íbúð. Lauk svo deginum með hátíðarkvöldi í Höllinni með mat og skemmtiatriðum, þar sem Milljónamæringarnir léku fyrir dansi fram á nótt. Frábær dagur í alla staði.

Til hamingju strákar !

No comments: