Hafsteinn og Kristján stóðu sig frábærlega með blaklandsliðinu í ferðum þess nú í júní. Á smáþjóðaleikunum á Kýpur hlaut liðið brons verðlaun. Hafsteinn var auk þess 5. stigahæstur í hávörn og 9. stigahæsti leikmaður keppninnar í heild. Sannarlega góður árangur það.
Dagana 26-29. júní fór svo fram úrslitakeppni EM smáþjóða í Lúxemburg þar sem íslenska liðið vann einnig til bronsverðlauna. Þar voru einnig veitt einstaklingsverðlaun fyrir besta leikmann í hverjum þætti leiksins og hlaut Hafsteinn verðlaun sem besti hávarnarleikmaður keppninnar. Mörg ár eru síðan karla-blaklandslið Íslands hefur unnið til verðlauna á alþjóðlegum mótum og greinilegt að blakarar eru á réttri leið. Strákarnir hafa staðið sig frábærlega og eru greinilega í mikilli sókn. Mamman er að moka pasta í Kristján til að þyngja hann og rétta hans hlut í innbyrðis keppni tvíburanna !

No comments:
Post a Comment