
Haldið var á lansmót UMFÍ á Akureyri helgina 10.-12. júlí. Karlpeningur fjölskyldunnar keppti í blaki og Sigrún líka, að sjálfsögðu fyrir HSK. Guðbjörg sá um að hvetja mannskapinn sem hún og gerði með afbrigðum vel. Feðgarnir enduðu í 2. sæti í blak-keppninni eftir naumt tap fyrir strákunum í UMSK. En stúlkurnar enduðu í 4. sæti. Hafsteinn og Kristján kepptu svo í strandblaki og höfnuðu í 3. sæti þar. Dvöldum við í íbúðinni góðu og fópr vel um mannskapinn í blíðviðri alla helgina.
No comments:
Post a Comment