27 July 2007

Norðurland heimsótt


Í lok júlí fór fjölskyldan norður í land. Byrjað var á stjötugs afmæli Sigurjón á Glitstöðum í Borgarfirði þar sem dýrindis afmælisveisla var haldin í Munaðarnesi. Svo var ekið sem leið lá í Eyjafjörð þar sem ferðalangar beyddust gistingar á Hrafnagili hjá Höllu og Bjarna. Var það auðfengið mál. Svo var haldið í Fnjóksadal þar sem hinn tvíburinn, Hildur, heldur sig stundum. Að Sellandi er sælureitur þar sem Þór Sigurðsson hefur byggt sér bústað. Fór þór með hópinn sem gisti í bústaðnum í skoðunarferð inn í Bleiksmýrardal innaf Fnjóskadal. Var það skemmtilegt og fróðlegt að fá að njóta leiðsagnar hans og söguþekkingar. Yfirgáfum við Fnjóskadalinn og héldum á Kópasker þar sem dvalið var hjá Evu í hjúkrunarbústaðnum. Fórum við í gönguferðir, m.a. á Snartastaðanúp og út í Hvalvík. Ekið var í Forvöð í Jökulsárgljúfrum sem eru einna fáfarnasti ferðamannastaður á þeim slóðum. Hrikaleg og gróðursæl vin.

No comments: