10 August 2007

Unglingalandsmót á Höfn


Fjölskyldan skellti sér á unglingalandsmót ÁHöfn þrátt fyrir afleita veðurspá. Rættist svo um munaði úr veðri og hélst þurrt alla helgina. Hafsteinn og Kristján eru á seinasta keppnisári sínu á þessu móti og Guðbjörg á sínu fyrsta. Bræður kepptu í knattspyrnu, körfubolta og kúluvarpi. Árangur var silfur í körfu og knattspyrnu en eitthvað annað í kúluvarpinu ! Guðbjörg keppti í sundi og hlaupi og stóð sig vel á öllum vígstöðvum. Vann hún gull í boðsundi ásamt tveimur stúlkum úr Ægi og Inge Sol. Flott hjá þeim. Helgin var góð og var tjaldað við hliðina á Gauja frænda á Selfossi og fór vel á með hópnum. Frábær helgi þar allir skemmta sér án allrar vímu.

No comments: