13 July 2007

Sumarfrí í Portúgal


Þann 26. júní var farið í langþráð sumarfrí til Portúgals. Tíu manna hópur lagði af stað þann 26. júní og auk okkar fimm voru Kristján afi, Guðbjörg amma, Pála, Eva og Árni. Leigðum við stórt einbýlishús, sannkallaða "villu", í smábænum Paderne, um 15 km. frá Albufeira. Húsið okkar var með sundlaug, billiard-borði og frábærrar sólbaðsaðstöðu. Notuðum við næstu tvær vikurnar til að skoða nágrennið, fara í skoðunarferðir og sóla okkur í garðinum. Við fórum t.d. einn dag til Lissabon sem er um 2,5 klst. akstur, gaman að koma þangað og skoðuðum við kastalann og gengum um þröngar göturnar í miðbæðum.
Zoo marine var einn af hápunktunum þar sem Guðbjörg fékk að fara í laugina hjá höfrungunum. Vatnsrennibrautagarðurinn Aqualand var einnig skemmtilegur og flest tekið með trukki þar. Húsbóndinn lét samt ekki leiða sig á glapstigu með þvi að fara í hæstu brautina. Strendur voru kannaðar, farið á jet-ski og hjólabát og gert vel við alla í mat og drykk. Mjög skemmtilegt frí með skemmtilegu fólki. Innan skamms má lesa almennilega hér almennilega ferðasögu .

No comments: