12 June 2007

Kópasker í júníbyrjun


Farið var norður í land í júníbyrjun og tvíburabræður sóttir í skólann, búnir með 2. bekk í MA. Hver hefði nú trúað því ? Duglegir strákar ! Síðan ver ekið sem leið liggur til Kópaskers þar sem Eva var heimsótt í sumarvinnuna á heilsugæslunni og fengum við inni hjá henni í þrjár nætur. Farið var í gönguferðir, minigolf á Kópaskeri, golf í Ásbyrgi, horft á Snört spila knattpyrnuleik (gekk ekki vel) og kíkt nokkrum sinnum í búðina til Óla og Kristbjargar. Alltaf gaman á Kópaskeri.

No comments: