20 March 2006

Vestmannaeyjaferð


Um seinustu helgi var farið til Vestmannaeyja í keppnisferð með sunddeild Hamars. Sundmótið kallast Grallaramót ÍBV og alls voru það 15 krakkar undir 12 ára aldri sem skelltu sér með. Var farið með Herjólfi á föstudaginn og var það erfið ferð fyrir suma en ca. helmingurinn af krökkunum varð sjóveikur en þeir fullorðnu sluppu. Allir hresstust samt undir eins og stigið var í land og var þá farið í göngutúr og m.a. spreytt sig í Spröngunni. Að öðrum óslöstuðum þá var það heimamaðurinn Maggi Tryggva sem var greinilega vanastur og tók þetta með stæl. Sundmótið hófst svo á laugadeginum og stóð allan daginn með hléi um miðjan dag. Krakkarnir stóðu sig með afbrigðum vel og fengu fjölmörg verðlaun. Að auki voru þau til fyrirmyndar í alla staði og gaman fyrir mig og Kent að vera fararstjórar með svona skemmtilegum hópi. Heimferðin gekk vel og enginn fann fyrir sjóveiki í það skiptið.
(Myndir má sjá undir tenglinum “Myndasíðan mín”)

No comments: