
Liðin helgi fór nánast alveg í blak og að þessu sinni snerti í ég sjálfur aldrei bolta. Á laugardag var haldið hið árlega Kjörís mót okkar Hamarsfólks sem að þessu sinni var haldið á Selfossi. Við leigðum hið nýja og glæsilega íþróttahús Iðu til mótsins, enda ekki vanþörf á þar sem á mótið mættu ein 16 kvennalið. Karlaliðin voru hins vegar af skornum skammti í þetta sinn og slógum við þá keppni af og vorum í staðinn í dómgæslu og umsjón með kvennaleikjunum.
Mótið gekk vel í alla staði og fór fólk glatt og ánægt heim enda glæsileg blóm í verðlaun og ís handa öllum í lok móts.
Á sunnudag fóru svo fram úrslitaleikir í bikarkeppni BLÍ. Þar mættust KA og Stjarnan í karlaflokki og KA gegn Þróttur R. í kvennaflokki. Hafsteinn og Kristján voru í leikmannahópi KA og voru gulir og glaðir eins og aðrir KA menn þennan dag. KA sýndi góða takta og gat með smá heppni krækt sér í oddahrinu. En Stjarnan sigraði 3-1.
1 comment:
Hitakútur á Cafe Kidda Rót laugardagskvöldið 20. mai.... sjáumst þar.
Bara að auglýsa það:)
Post a Comment