
Um helgina fórum við í skíðaferð til Akureyrar. Var farið norður á fimmtudaginn og skíðað á föstudag, laugardag og hluta úr sunnudegi. Heldur gekk brösuglega með allan hópinn því Kristján lagðist í flensu fyrir helgi en þóttist orðinn góður á laugardaginn, svo hann skellti sér á skíði þá. Eitthvað fór það illa í kallinn því hann lagðist aftur með hita á sunnudaginn og var alveg rúmliggjandi. Skíðafæri var hins vegar ekki sérlega gott því það var 10 stiga hiti og því frekar mjúkt og blautt. Lítill snjór er í fjallinu og því erfitt að skíða neðarlega í brekkunum en þolanlegt uppi í Strompi. Á fimmtudagskvöldið þegar við komum norður þá fóru ég (Valdimar) og Hafsteinn á blakæfingu hjá KA því Kristján var veikur. Var það hin besta æfing og það besta var þegar einn KA maðurinn spurði Hafstein, hvort þetta væri frændi hans. Trúði sennilega ekki að hér væri faðirinn kominn (veit ekki af hverju). Foreldrarnir fóru svo í leikhús á föstudagskvöldinu og sáu Maríubjölluna. Mjög áhugavert leikrit og sérlega vel leikið, ungir og upprennandi leikarar þar á ferð. Svo elduðu Hildur Óla og Þór fyrir okkur kvöldverð á laugardagskvöldinu. Mjög skemmtilegt og alltaf gaman að hitta þau. Enduðum við svo á sunnudaginn með því að fara á Greifann að borða áður en við keyrðum suður, þar sem við tókum Hafstein Dagvíðsson með okkur heim frá Bifröst en hann var í heimsókn hjá Gísla og Skafta .
No comments:
Post a Comment