
Farið var í fyrsta sinn á skíði í útlöndum í janúar. En þá buðu Soffía og Denni okkur að vera hjá sér í íbúðinni í Tende í Frakklandi. Skíðað var í frábæru veðri, smá frosti en björtu í Limone sem er á Ítalíu, en bara í 20 mín. akstursfjarlægð frá Tende. Fengum við skíðaleiðsögn frá hinum brosmilda Frakka, Gilbert sem var skíðaþjálfari á Íslandi í mörg ár og talar fína íslensku. Ekið var um héraðið, niður til Menton, Mónakó og Nice þar sem við fengum suðræna miðjarðarhafsstemingu til mótvægis við snjóinn. Frábær ferð og allir afar gestrisnir "íslenskir Frakkar" sem og innlendir Frakkar. Nánari ferðasögu má bráðum sjá hér og myndir eru hér.
No comments:
Post a Comment