26 May 2010

Ferming Guðbjargar


Einkadóttirin var fermd á Hvítasunnudag, 23. maí. Dagurinn var einn fallegasti dagur vorsins, sól og hiti. Fermt var í Hveragerðiskirkju og sá séra Jón Ragnarsson um athöfnina. Kaffiveitingar voru svo bornar fram í garðyrkjuskólanum á Reykjum, sem skartaði sínu fegursta blómaskrúði, eins og fermingarbarnið. Til hamingju Guðbjörg okkar !

No comments: