
Eins og margir vita þá eru synirnir nú í vetur í Álaborg í Danmörku þar sem þeir spila blak með Aalborg og vinna með því. Skelltum við okkur í heimsókn eina langa helgi í október, sáum þá spila leik gegn Hvidovre sam vannst að sjálfsögðu. Auk þess sem Álaborg var skoðuð, farið kirkju með fermingarbarnið í Dómkirkjuna í Álaborg. Svo heimsóttum við Hinrik Lindhardt á Aabybro mejeri sem sýndi okkur mjólkurbúið og ísgerðina sína bak og fyrir. Fórum við líka í heimsókn til ljósmóður, sem Sigrún kynntist í ALSO verkefninu, sem býr rétt utan Álaborgar og vorum boðin þar í mat og skemmtilega heimsókn. Strákarnir hafa það gott og líður vel hjá Dönunum, Kristján hjólar um Aalborg fyrir lögfræðistofur en Hafsteinn vinnur á DVD diska sölu, Laserdisken. Svo búa þeir í stúdioíbúð á Annebergsgade. Det er så dejligt!
No comments:
Post a Comment