"Kallinn" búinn að æfa á fullu og tilbúinn í allt, að eigin mati. Var ákveðið að reyna við Reykjavíkur hálfmaraþon, laugardaginn 22. ágúst. Fínt veður, aðeins svalt og súld um morguninn en gott hlaupaveður. Fór með Eyþóri og Tona í bæinn. Kláraði hlaupið á 1.57.59 og var númer 749 af 1462 hlaupurum. Ætla að gera betur næst, enda bæði Eyþór og Toni á undan mér.
No comments:
Post a Comment