
Hið frábæra unglingalandsmót var að þessu sinni haldið í grennd við okkur í Þorlákshöfn. Þessi mót eru alltaf frábær og skemmtileg samverustund fyrir alla fjölskylduna. Hafsteinn og Kristján fóru að þessu sinni til Akureyrar og voru ekki með. Ekki fékkst fjölskyldufaðirinn samt til að tjalda í Þorlákshöfn. Guðbjög stóð sig að venju vel í sundinu og keppti auk þess í hlaupum.
No comments:
Post a Comment