30 July 2008

Í annað sinn yfir Sprengisand


Í annað skipti á ævinni skelltum við okkur yfir Sprengisand á leiðinni suður eftir göngutúrinn í Víkum og brúðkaupið á Kópaskeri. Yfirgáfum við Kópasker í 21°c hita og var hlýtt vel áleiðis inn allan Bárðardal. Jöklarnir skörtuðu sínu fegursta en hefðum við viljað aðeins betra útsýni suðuryfir þegar halla fór í suður. En aksturinn fór loksins að ganga þegar Sgrún fékk leið á sandinum og rólegheitunum og tók til við aksturinn !

No comments: