16 August 2008

Sumarfrí á norðurlandi




Eftir verslunarmannahelgi skelltum við okkur norður í land og dvöldum í athvarfi okkar í 2 vikur. Hemmi, Arna og synir dvöldu hjá okkur í nokkra daga og skoðuðum leyndardóma norðurlands með þeim. Fórum við m.a. út á Flateyjardal (sjá Guðbjörgu og Sigrúnu við Brettingsstaði) og skoðuðum jólahúsið í Eyjafirði. Eftir að þau fóru skelltum við okkur á fiskidaginn á Dalvík og fengum dýrindis fiskisúpu hjá Kötu frænku og Hauki. Einnig urðum við að fá smakk hjá Loga og Svanhildi þar sem Hvanndalsbræður sáu um fjörið. Að lokum skelltum við okkur uppá Kaldbak við Grenivík áður en við héldum suður. Alltaf skemmtilegt á norðurlandi.

No comments: