Loksins var komið að því að fara í afmælisgönguferð Sigrúnar í Borgarfjörð eystri, dagana 21.-24. júlí 2008. Lagt var af stað úr Hveragerði á föstudegi, gist á Höfn og aftur á Egilstöðum áður en haldið var í Borgarfjörð. Sunnudagskvöldið var notað til aksturs yfir í Húsavík og upp á hálsinn þar fyrir ofan og fengum við glæsilegt útsýni yfir Víkurnar og Hvítserk sem skartaði sínu fegursta. Hópurinn samanstóð af 12 fjölskyldumeðlimum og vinum. Gangan hófst á mánudagsmorgni og var þá ekið upp á Vatnsskarð og gengið í Stórurð. Stórkostlegar klettamyndanir, snjór og lón mynda veröld sem á enga sína líka. Annan daginn var gengið frá Borgarfirði um Brúnavík og yfir í Breiðuvík. Þar var gist í skála ferðafélagsins og kveikt bál í fjörunni um kvöldið og sungið. Þriðja daginn var gengið yfir í Kjólsvík, upp á Gletting og niður að tóftum bæjarins sem þar stóð. Eftir heitan dag var að sjálfsögðu tekið bað í bæjarlæknum í Breiðuvík sem var heldur kaldur að sumra mati ! Fjórða daginn var svo gengið inn Breiðuvíkina um Vatnstungur, inn í Borgarfjörð og inn í þorpið. Veður var gott fyrstu 2 daga en stórkostlegt seinni tvo daga. Gerði þá brakandi blíðu með 20 stiga hita sem ekki mátti vera meiri, til að hægt væri að ganga nokkuð uppréttur. Enduðum við þessa ferð með lambakjötsveislu í Fjarðarborg á Borgarfirði. Síðan var ekið sem leið lá til Egilsstaða í heita pottinn í sundlaug staðarins og svo í gistingu á Eyjólfstöðum. En gott var að komast í rúm eftir flatsæng með 20 göngumönnum. Frábær ferð sem skipulögð var af Helga Má Arngrímssyni og syni hans Hafþóri sem var leiðsögumaður okkar á göngunni. Allar upplýsingar um göngur og ferðir á þessum slóðum má fá hjá þeim feðgum. Nánari ferðasögu má sjá hér til hliðar undir ferðasögur. Myndir eru einnig komnar á nýju myndasíðuna mína.
No comments:
Post a Comment