04 June 2008

Synirnir á leið til Möltu


Hafsteinn og Kristján hafa verið valdir í A-landslið Íslands í blaki og eru á leið til Möltu á EM smáþjóða. Mótið á Möltu fer fram dagana 6-8. júní og er þetta er frumraun þeirra bræðra með karlalandsliðinu á alvörumóti ,en í fyrra fóru þeir á æfingamót með þeim til Hollands. Vonandi standa þeir sig, strákarnir og fá aðeins að spreyta sig og nota alla sentimetrana. Til hamingju strákar !

1 comment:

Anonymous said...

Frábært að heyra. Sá að þeir voru að vinna Möltu svo það er allt í góðu gengi þarna hjá þeim. Fylgist spennt með.
Kv. Sibba og co.