18 March 2008

Sigrún 40 ára


Loksins náði frúin mér og fyllti 40 árin, þann 13. mars. Að sjálfsögðu var boðið til veislu sem haldin var á Hótel Örk þann 15. mars og mættu rúmlega 100 manns til að hylla afmælisbarnið. Bæjarstjórinn sjálfur, Aldís Hafsteinsdóttir, var veislustjóri og veitti ekki af öruggri handleiðslu þar sem dagskráin var mikil og fjöldi manna sem vildu mæra afmælisbarnið. Guðbjörg sýndi dans og Hafsteinn og Kristján mættu beint úr undanúrslitaleik í bikarkeppni BLÍ og héldu glimrandi ræðu fyrir mömmu sína. Að endingu var slegið upp balli þar sem Hvergerðska hljómsveitin Hitakútur hélt uppi taumlausu fjöri fram á nótt. Í alla staði vel heppnað og frábært afmæli. Hér má sjá myndir úr afmælinu: http://www.123.is/valdih/pictures/

No comments: