Sigurbjörg systir og Helgi eignuðust loks litla stelpu 28. apríl. Smá basl var búið að vera á Sibbu á meðgöngunni en allt gekk svo eins og í sögu undir handleiðslu hinnar frábæru ljósmóður, Sigrúnar !! Sennilega hefur Sibba bara verið að redda sér ódýru fari suður með sjúkrafluginu um daginn. En hvað um það, í heiminn kom stúlka 15 merkur og 53 cm og var nefnd Hafrún. Eitthvað hefur Hafsteins fjölskyldan verið útþynnt þar sem þetta eintak kom með dökkbrúnt bítlahár úr móðurkviði og er það sýnu frá föðurnum. Til hamingju öll .
No comments:
Post a Comment