18 February 2008

Berlínarferð


Í febrúar fór Sigrún með mig í óvissuferð sem endaði í Berlín. Sannarlega óvænt og hitti ég meðferðalanga okkar í Leifsstöð, sem voru Björk og Guðrún ásamt eiginmönnum Grími og Unnsteini. Þetta var frábær ferð með hápunkti á matsölustaðnum Unsicht, þar sem er kolniðamykrur og þjónarnir blindir. Verulega áhugaverð upplifun og merkilegt að hægt skuli vera að reka svona veitingastað. Annars skemmtum við okkur við mat og drykk og skoðuðum Berlin í bak og fyrir. Ekki gat ég yfirgefið borgina án þess að hafa uppá vini mínum honum Gísla Jóni. Náðum við að hittast og komst ég heim til hans og sýndi hann mér nágrennið hjá sér. Hittumst við svo aftur með Sigúnu og Astrid á veitingastað, svona rétt til að kasta kveðju í lokin.

No comments: