
Í tengslum við blómstrandi daga í Hveragerði í ágúst þá ákvað Kjörís að halda ísdag. Blandaðar voru hinar ýmsu tegundir af ísum og fólki gefið að smakka. T.d. voru framleiddar tegundir eins og bjórís, grænmetisís, baileysís, chiliís, cheerios ís og margar fleiri skemmtilegar tegundir. Sumar féllu vel í kramið en aðrar síður. En dagurinn var skemmtilegur og allir fengu eitthvað við sitt hæfi. Líklegt er að þetta verði árlegur viðburður á blómstrandi dögum.
No comments:
Post a Comment