22 October 2007

Blak á Akureyri


Farið var um helgina til Akureyrar og dvalið í íbúðinni í Hrísalundi. Helgin notuð til að snyrta og laga í íbúðinni. Auk þess sem horft var á leiki KA og Stjörnunnar í blaki, bæði á föstudag og laugardag. Laugardagsleikurinn var æsispennandi og litlu munaði að KA næði að leggja Stjörnumenn. Kemur örugglega næst. Á myndinni sést Kristján, nr.13, gnæfa yfir netið.

No comments: