Liverpool er mitt félag og hefur verið í ca. 35 ár. Pabbi, heitinn, gaf mér veifu eftir eina utanlandsferðina sína á árum áður og er sú veifa löngu orðinn orðin safngripur og hefur heiðurssess á heimili mínu. En sú veifa var gerð í tilefni að fyrsta Evrópumeistaratitli Liverpool árið 1977. Þá sigruðu okkar menn B. Mönchengladbach í úrslitaleik í Róm. Eins og menn vita hafa bæst við 4 Evrópumeistaratitlar síðan og sá 6. hugsanlega í dag.
Árið 1977 var lið Liverpool skipað: 1. Ray Clemence, 2. Phil Neal, 3. Joey Jones, 4. Tommy Smith, 6. Emlyn Hughes - 5. Ray Kennedy, 8. Jimmy Case, 10. Ian Callaghan, 11. Terry McDermott - 7. Kevin Keegan, 9. David Fairclough
1 comment:
Þetta eru nú meiri trúarbrögðin! Vil benda á að faðir okkar hefur án efa gripið eitthvað veifudrasl, það fyrsta sem var við höndina hefði allt eins getað orðið Everton eða Man. United. Hvað hefði orðið um þig þá?????
Kv. sIs
Post a Comment