20 May 2007

MA-félagar í Mývatnssveit


Föstudaginn 18. maí var haldið norður í land að hitta gamla MA félaga (+ Hallgrím). Mættir voru í ferðina auk Hallgríms, Björn Jónas, Haraldur og Jón Björns. Farið var með flugi og haldið sem leið lá í Mývatnssveit. Nokkuð bjart var en næðingur og 2-3°C hiti, þannig að oft hefur verið betra veður í sveitinni. Þar var ekki beðið með hlutina heldur haldið rakleitt í Voga, æskuheimili Björns, og gert klárt fyrir veiði. Hugur var í mönnum og græjurnar hreinlega ultu út úr Harley Davidson pallbílnum hans Jóns, sem að sögn áttu að moka upp afla sem aldrei fyrr. Nokkur vandkvæði urðu með utanborðsmótor fleytunnar en eftir talverða rimmu náði skáldið loks tökum á vélinni og var siglt vandkvæðalaust eftir það. Heldur var rýr veiðin í vatninu og risið á Jóni orðið lágt þegar leið á. Enda var kuldinn farinn að segja til sín og menn farnir að líta vonaraugum á Jarðböðin í fjarska. "Skipper" Björn sló veiðskapinn af eftir ca. 2 tíma og kenndi Jóni Inga á næsta bæ um hrakfarir okkar. Enda hafði Jón Ingi mokað upp silungi í net um viku áður og sennilega hreinsað miðin, í bili. Heldur kættust menn þegar komið var í Jarðböðin og gott að fá í sig hita eftir kuldavolkið á vatninu. Síðan var haldið á Hótel Reynihlíð þar sem hópurinn fékk sérstakan 5 rétta matseðil að hætti hússins. Sérlega góð og vel útilátin máltíð. Að henni lokinni var slegið upp Trivial keppni þar sem við fimm-menningar skoruðum á tvenn hjón frá Húsavík. Þau kættust mjög við það að slá rómantískri ferð upp í Trivíal-keppnisferð og mörðum við sigur eftir æsispennandi endasprett.
Að loknum góðum nætussvefni og morgunmat var aftur haldið í Voga og reynt til þrautar við vatnið. En ekki höfðum við erindi sem erfiði, því enginn fiskur gaf sig í þetta skiptið heldur (helvítið hann Jón Ingi !). Var því haldið heim á laugardegi með engan fisk en góðar minningar eftir samneyti við góðan félagsskap.

Sjá myndir á myndasíðu.

No comments: