
Ég og Sigrún fórum til Englands í September í nokkra daga, þar sem var byrjað á fundi í Bristol hjá Walls mönnum. Á leiðinni frá Bristol stoppuðum við hjá Stonehenge til að skoða þær 5000 ára gömlu minjar.Síðan var haldið til London þar sem við hittum fjölskyldu Sigrúnar. En þangað voru allir mættir til að vera við brúðkaup Phoebe og Kjartans. Gistum við á hóteli í Greenwich en giftingin fór fram í dönsku kirkjunni við Regent Park. Veisla var svo haldin í Greenwich. Alveg ferlega skemmtileg samkoma þar sem Heimir var veislustjóri og nóg að borða og drekka. Daginn eftir hélt Sigrún Reilly veislu heima hjá sér fyrir Íslendingana og var það ekki síðri veisla en hin. Héldum við til í garðinum hjá Sigrúnu og Dermot frá kl. 3 um daginn til 12 um kvöld. Sól og 30° c hiti skemmdu alls ekki fyrir.
No comments:
Post a Comment