
Laugardaginn 26. ágúst var ákveðið að halda uppá það að 20 ár eru liðin síðan knattspyrnulið UFHÖ spilaði við Akranes í 16 liða úrslitum bikarkeppni KSÍ. Akranes var um þær mundir með eitt besta lið landsins með menn eins og Ólaf Þórðarson, Birki Kristinsson, Árna Sveinsson, Sveinbjörn Hákonarson, Sigurð Lárusson, Aðalstein Víglundsson, Alexander Högnason og fleiri góða. UFHÖ var skipað einvala leikmönnum með gömlu kempuna og þjálfarann, Stefán Halldórsson, í broddi fylkingar. Leikurinn endaði 0-5 fyrir Akranes þrátt fyrir að ekki mætti á milli sjá á stundum (0-0 í hálfleik). Aldrei hefur annar eins fjöldi áhorfenda komið á knattspyrnuleik í Hveragerði eða 450 manns á gamla malarvellinum við grunnskólann.
Ákveðið var að hittast fyrst í golfi þar sem flestir gömlu leikmannana eru komnir af léttasta skeiði, en golfið hentar vel eldri borgurum !!
Síðan var leikin knattspyrna á grasvellinum og sýndu margir gamla takta en ekki allir góða takta. Menn voru í afar misjöfnu líkamlegu ástandi og sumir greinilega ekki snert knött í óratíma. En allir sluppu ómeiddir frá þessu og höfðu talsvert gaman af.
No comments:
Post a Comment