Árshátíð Kjörís var haldin á Hótel Freysnesi í Skaftafelli þann 10. mars. Farið var á föstudegi og var laugardagurinn notaður til að njóta hinnar stórbrotnu náttúru í Öræfasveit. Byrjað var á gönguferð að Svartafossi og síðan var haldið í ísklifur í Virkisjökli með Einari í Hofsnesi. Einar er þrautreyndur fjallakappi og hefur farið oftast Íslendinga á Hvannadalshnjúk. Ísklifrið var frábær skemmtun og reyndu einir 13 manns við klifrið með misjöfnum árangri. En þetta var verulega skemmtilegt og reyndi á tækni og þol.
Árshátíðin sjálf fór fram um kjöldið á hótelinu þar sem var töfraður fram dýrindis matur og á eftir sáu starfmenn Kjörís um fjörið, ásamt því sem að JónSkeiðamaður var mættur með músíkina sem var við hæfi fyrir þennan hóp. Sannarlega skemmtilegt og vel heppnuð árshátíð.

No comments:
Post a Comment