01 August 2006

Gönguferð í Fjörður í júlí 2006


40 ára afmælisgjöfin var notuð nú í lok júlí þegar farið var í fjögurra daga gönguferð í Fjörður, norður af Grenivík. Sigrún kom auðvitað með, sem og Guðbjörg og Kristján (tengdaforeldrar mínir), Guðrún og Ásmundur úr Kópavogi og Bryndís og Kent úr Hvergerði. Í gönguhópnum voru hins vegar 21, menn og konur, auk Björns Ingólfssonar fararstjóra. Þarna var því hópur allskonar fólks sem maður kynntist allvel á þessum fjórum dögum.
Ferðin byrjaði á bílferð frá Grenivík að Gili í Hvalvatnsfirði. Þaðan var gengið í náttstað að Þönglabakka. Annan daginn var gengið yfir í Keflavík. Þriðja daginn yfir Uxaskarð að Látrum á Látraströnd, þar sem var gist. Fjórða og síðasta daginn var gegnið inn Látraströndina að Svínárnesi þar sem hópurinn var sóttur og selfluttur á bílum síðasta spölinn til Grenivíkur. Dagleiðirnar voru 8-14 km. langar og við allra hæfi og með það blíðskaparveður sem hópurinn fékk á göngu sinni þá var þetta einstaklega skemmtilegt og þægilegt í alla staði.
Sögustundir Björns af staðháttum, fólki og lifnaðarháttum þess á þessum slóðum eru ljóslifandi í minningunni. Erfitt gat þó verið að ímynda sér erfiðleika þá sem við var að glíma á þessum slóðum á fyrri áratugum og öldum, miðað við þá veðurblíðu og fegurð landsins sem við fengum að njóta þessa daga. Fuglasöngurinn, gróðurinn, fjöllin, sjórinn, kyrrðin og ískaldar uppspretturnar, allt eru þetta forréttindi sem við drukkum í okkur þessa frábæru daga í Fjörðum.
Nánari ferðalýsingu má finna á þessari slóð fyrir þá sem nenna að lesa meira : http:/fjordur-ganga.blogspot.com

No comments: