09 July 2006

Gönguferð á Hengil


Í dag var haldið gönguferð á Hengilsvæðið. Keyrt var upp með Hengladalaánni og stoppað við Litla-Skarðsmýrarfjall. Þaðan var gengið sem leið lá inn að Hengli, upp Kýrgil og uppá Hengilinn þar fyrir innan. Stefnan var tekin á hæsta punkt utan Vörðu-Skeggja, sem mun vera Nesja-Skyggnir. Þaðan var alveg frábært útsýni yfir Þingvallavatn, fjallahringinn í kring og alveg inn á öræfi. Þurftum við að haska okkur niður aftur í mikilli tímaþröng, því það þurfti að ná heim til að horfa á úrslitaleik HM í knattspyrnu, Ítalíu-Frakkland. Rétt náðist það með mjög röskri göngu í lokin.

No comments: