

Daginn eftir Súlugöngu var haldið á Kópasker sem er ómissandi þáttur í ferðalögum fjölskyldunnar á hverju ári. Búið var að falast eftir gistingu í Víðihóli hjá Óla og Kristbjörgu og stóðst það auðvitað eins og stafur á bók. Farið var í göngutúra um Kópasker út að vita niður í fjöru. Mallavöllur var prófaður í golfi og ýmislegt annað gert sem nauðsynlegt er á Skerinu. Frúin fór auðvitað í sínar heimsóknir og kannaði lífið hjá vinum og kunningjum. Ég fékk skoðunarferð um Fjallalamb hjá Víkingi og var gaman að sjá það. Veður lék ekkert sérlega við okkur, kalt en samt þurrt.
Haldið var frá Kópaskeri á föstudegi og ekin ströndin, Raufarhöfn, Þórshöfn, Bakkafjörður og Vopnafjörður. Farin var Hellisheiði og komið á Eskifjörð um kl. 18 um kvöldið. Rigning var með köflum þennan dag og því ekki stoppað mikið á leiðinni.
Sigurbjörg tók á móti okkur með kvöldverði og sátum við og spjölluðum það kvöld. Daginn eftir gerðum við víðreist, fórum í Atlavík og hittum Laufey Sif. Þar fór fram skógardagurinn mikli sem er árlegur hátíðisdagur og var mikið fjör, sól og hiti. Enduðum við daginn á því að keyra með Sibbu og Laufey inn að Kárahnjúkum til að berja herlegheitin augum þar uppi. Eru þetta miklu meiri framkvæmdir en maður getur ímyndað sér. Komum við frekar seint heim en samt nóg til að fara á bát með Villa og sigla um fjörðinn í frábæru veðri, algjör upplifun. Eftir það var Laufey ekki meira þreytt að hún skellti sér í partí á Eskifirði og kom heim um miðja nótt. Sunnudagurinn var notaður í að aka í Borgarfjörð eystri. Þar sem við fengum kaffi og meðí í Kjarvalsstofu. Þar hittum við m.a. mömmu söngvarans Magna og spjölluðum heilmikið við konu sem sagði okkur frá mögulegum gönguferðum á svæðinu og vorum við ákveðin í að koma síðar til gönguferða.
Um kvöldið var grill hjá Helga og loksins fengum við smá tíma til að kynnast manninum !! Mjög notalegt kvöld .
Seinsta daginn vorum við á Eskifirði fórum í sund og út í Helgustaðanámu . Fundum svo læk þar sem við borðuðum nesti og börnin á öllum aldri busluðu í læknum .
Daginn eftir skelltum við okkur í sund áður en við lögðum af stað suður og vorum rétt komin uppúr þegar allt varð vitlaust á Eskifirði vegna eitrunar í sundlauginni. Við alveg ferlega heppin að sleppa ! Gistum við svo á Höfn á leiðinni suður .
Frábært frí og snilldargestgjafar á öllum stöðum.
1 comment:
Það er aldeilis að losnaði um ritstífluna. Nú þarf að lesa síðuna þína reglulega ....
Alltaf skemmtilegt að lesa ferðasögur.
Bestu kveðjur
Post a Comment