
Um miðjan júní skellti fjölskyldan sér í smá frí. Bræður fengu frí í vinnunni og var haldið til Akureyrar þar sem heimilisfaðirinn fagnaði 20 ára stúdentsafmæli með útskriftarárgangi 1986 úr MA. Þetta var auðvitað heilmikill fagnaður eins og búast mátti við. Farið var í partí og matarveislu á Vélsmiðjunni og endað á balli í Höllinni þar sem var dansað fram á nótt þann 16. júní. 17. júní var auðvitað tekinn með trompi á Akureyri og farið í bæinn og uppí Menntaskóla.
Bræðurnir voru svo sendir heim með flugi á sunnudagskvöldi en aðrir ætluðu að vera rúma viku lengur í fríi.
Á mánudegi var haldið í mikinn göngutúr á Súlur fyrir ofan Akureyri 1167 m. Það reyndist heilmikil ganga og fór Guðbjörg að sjálfsögðu með og var það lítið mál. Gengið var á Súlutindana báða og var úr þessu ein 7 tíma ganga. Þetta er önnur ferð okkar á Súlur en hin fyrri var fyrir 10 árum (um Páska 1996).
No comments:
Post a Comment