
Um Hvítasunnuhelgina var farið til Danmerkur í langa helgarferð. Var farið í samfloti með Kent, Bryndísi og Inge Sol. Ferðin var meiriháttar skemmtileg enda alltaf gaman að vera með skemmtilegu fólki.
Eilítið var verslað, farið var í skoðunargöngutúr á Amalienborg og út að litlu hafmeyju. Farið í dýragarðinn og auðvitað í Tivoli. Kent var óspart þjálfaður í dönskunni og látinn hafa orð fyrir hópnum í tíma og ótíma. Sennilega sjáum við sjálf um samskiptin í næstu ferð því litlu munaði að kallinn missti stjórn á sér við þrjóska, miðaldra Kaupmannahafnarkonu á hjóli. En þetta slapp til í þetta skiptið. Kíktum að auki á Laundromat, kafihúsið hans Friðriks Weisappel á Nörrobro. Gaman að koma þangað. Hápunkturinn var eiginlega göngutúr um gamla hluta Kaupmannahafnar með Guðlaugi Arasyni rithöfundi sem gerir út á þessar skemmtilegu göngur með Íslendinga. Mjög gaman að fá söguna svona í æð.
Annars var veður þokkalegt 15-18°c hiti og stundum sól. Bjórinn góður og Hótel Bethel á Nyhavn alveg frábært og sérstaklega staðsetningin. Einnig var gaman var að hitta og eiga kvöldstund með Höllu Guðmunds og Möggu Bjarna á framandi slóðum.
No comments:
Post a Comment