07 May 2006

Öldungamót í Ólafsvík


Hið árlega öldungamót Blaksambands Íslands var haldið í Ólafsvík 28.-30. apríl. Hamarsmenn og konur skelltu sér að vanda á mótið sem fyrir löngu er orðinn fastur liður í dagskrá blakvertíðar okkar.
Við fengum lánað einbýlishús hjá ljósmóður og tannlækni staðarins og gistum þar í góðu yfirlæti í 3 nætur. Keppin var að venju hörð og spennandi og enduðu karlar í 2. sæti í 2. deild sem er sami árangur og fyrir ári síðan. Reyndar áttum við ágætis möguleika á að fara upp í efstu deild en áttum slakan úrslitaleik við TUA, sem fengu reyndan landsliðsmann á lokasprettinum til að styrkja liðið.
Konur enduðu í 5. sæti í 3. deild og var deildin jafnari en staðan gefur til kynna og í raun þurfti sáralítið til að enda í verðlaunasæti.
Að venju var slúttað með dúndur lokahófi í félagsheimili staðarins þar sem hljómsveitin Í svörtum fötum lék á alls oddi og var dansað alveg gríðarlega fram á rauðanótt.

No comments: