
Jólamánuðurinn er hafinn og hefur er hinn almenni jólaundirbúningur byrjaður. Það sem mest og athyglisverðast hefur verið gert undanfarið eru heimsóknir á hina ýmsu tónleika.
Fyrst ber að nefna útgáfutónleika, Hvergerðingsins, Magnúsar Þórs Sigmundssonar, sem haldnir voru í Salnum í Kópavogi. Skemmst er frá því að segja að þessir tónleikar voru hrein snilld. Magnús Þór fór á kostum eins og hann gerir á plötunni sinni "Hljóð er nóttin". Allt í einu uppgötvaði ég að maðurinn er fæddur snillingur ( þó mig hafi nú alltaf grunað það). Kom það best í ljós þegar hann var að segja frá tilurð laga sinna, hvernig þau koma til hans og fæðast, sum bara renna upp, einn tveir og þrír. Magnús leggur þau á minnið, gerir svo eitthvað annað, þangað til hann skrifar þau niður. Svo semur hann ógrynni laga fyrir hina ýmsu tónlistarmenn, sem maður er oft alveg grunlaus um að Magnús eigi. En nýi diskurinn er skyldueign á íslenskum heimilum !!
Næstu tónleikar sem farið var á voru útgáfutónleikar Jóhönnu Vigdísar Arnardóttur í Fríkirkjunni. Tónleikar Jóhönnu voru ólíkir Magnúsar tónleikum að því leiti að hún er þvílíkur "performer" og ein albesta söngkona landsins. En löngu sannað sig á þeim vettvangi. Lögin hennar á disknum "Mannsöngvar" eru öll lög sem karlmenn hafa sungið og gert ódauðleg. Jóhanna glensaði og grínaði, milli þess sem hún söng eins og engill, kasólétt manneskjan. Frábærir tónleikar með frábærum hljómlistarmönnum sem spiluðu undir. Eftir tónleikana var svo boðið til útgáfuteitis heima hjá þeim hjónum Jóhönnu og Þorsteini Dalvíking. Tvímælalaust skyldueign fyir unnendur frábærs tónlistarflutnings.Þriðju tónleikarnir voru svo stórtónleikar "Dívanna", íslensku, sem haldnir voru í Laugardalshöll. Diskurinn sem dívurnar voru að gefa út er sá þriðji í röðinni og frábær jóladiskur. Tónleikarnir voru auðvitað mjög glæsilegir þar sem þrír kórar voru í bakröddum, ásamt því sem fjöldi tónlistarmanna spilaði undir, strengir og allt það besta sem völ er á . Að mínu áliti stóðu söngkonurnar Jóhanna Vigdís og Regína Ósk sig best. En allar voru þær frábærar ásamt gestasöngvurunum, sem m.a. voru Jónsi, Gunnar Guðbjörns og Bjarni Ara. Eftir stóðu glæsilegir stórtónleikar sem samt voru fjarlægari en hinir fyrri tveir sem voru einstaklega heimilislegir og skemmtilegir.
No comments:
Post a Comment