
Árið kvaddi hér í Hveragerði með miklum hamagangi þegar hjálparsveitarhúsið brann með öllum óseldum flugeldum bæjarins.
Mikill bruni og heilmikið tjón hjá sveitinni sem vonandi verður bætt með öllum ráðum.
Ekki var, hins vegar, að sjá að minna væri á lofti í bænum á miðnætti en venjulega.
2 comments:
Blessaður mig langar að leiðrétta þig aðeins með þetta... virkar kannski ekki mikið en mér finnst þetta skipta miklu máli.
Þú segir að allir óseldir flugeldar sveitarinnar hafi brunnið... Það er rangt þar sem eldvarnarveggur milli vélasalar og sölulagersins hélt og salan sjálf og sölulagerinn brunnu ekki...
...þetta leiðréttist hér með.
...eldvarnarveggurinn var vel gerður og slökkvuliðið stóð sig vel.
bkv
Grjónið
samþykkt og meðtekið. Takk fyrir ábendingu.
VH
Post a Comment