24 November 2005

Kúbu lok


Þessi seinustu Kúbu skrif eru skrifum heima þar sem internet- samband var ekkert seinasta daginn á kúbu . Sennilega hefur Kastró ritskoðað póstana mína og lokað fyrir aðganginn minn, hver veit !!
En næst seinasta kvöldið okkar á Kúbu ákváðum við að borða kvöldverð á Havana libre hótelinu, á 25. hæð. Fórum við með Guðrúnunum og Unnsteini og Ásmundi. Það var bara mjög fínt og flott útsýni yfir Havana. Og bæði til hvítvín og rauðvín til á staðnum sem er nú ekki alveg sjálfsagt. Eftir að máltíðinni lauk þá fórum við yfir á skemmtistað á þessu sama hóteli og hlustuðum aðeins á músik . Við Sigrún urðum eftir á staðnum og vorum ekki alveg tilbúin að fara heim og skelltum okkur svo á jassklúbb þarna í grendinni og var það alveg ferlega skemmtilegur staður og svona ekta "jazz-búlla". Þar voru greinilega miklir snillingar sem léku við hvern sinn fingur. Fórum við svo heim í leigubíl sem ekki var leigubíll. Því það kom bara aðvífandi strákur og sagðist vera taxi. Við skelltum okkur með honum og sat þá bara kærastan frammí í eldgamalli Lödu sem nánast var að hrynja. Bensín stybbuna lagði inní bílinn, klæðningin var horfin af hurðunum og svo opnaðist hurðin hjá Sigrúni í einni beygjunni. Þannig að okkur leist ekki beint á blikuna, en drengurinn skilaði okkur á hótelið og kærastan var himinlifandi með dugnaðinn í honum og fína bílinn þeirra. Já, þetta er aðeins öðruvísi.
Seinasti dagurinn okkar rann upp og fannst okkur núna eins og það væri stofugangur hjá hjúkrunarliðinu í litla hópnum okkar. Allir gáfu skýrslu um svefn, lyfjainntöku og hægðir. Og þóttu þetta mikilvægar, eðlilegar og nauðsynlegar upplýsingar til að geta hafið daginn eðlilega. Til dæmis þurfti Sigrún að sofa í sófanum í herberginu því hún fær svo í mjöðmina á að sofa í svona hörðu rúmi (eða það segir hún allavega).
Annars var alveg hrikalegur sjógangur á strandgötunni og gekk sjórinn langt upp á land og braut brimið á varnargarðinum við veginn. Það var algjört flóð á verstu stöðunum á götunni og þurftu bílarnir að sneiða hliðargötur fram hjá þessu. Þetta eru víst leyfar af óveðri sem var hálfgerður fellibylur, Gamma, og gerði usla í Hondúras.
Fórum við svo í skoðunarferð, í næstum 3 tíma, um miðbæinn í hestvagni þar sem leiðsögumaðurinn var prófessor í ensku en hætti því til að vinna við túrsimann. Því þar er möguleiki á að drýgja tekjur sínar með tipsi. En næstum allir kúbverjar stóla á það að einhverju leiti. Enda fá þeir bara vasapening hjá Kastró til að eyða. Spurðum við kúbumanninn í þaula um lifnaðarhættina og svaraði hann skilmerkilega. Ljósmæðurnar voru hrifnar af því að þarna fá mæður 1-1,5 árs barnsburðarleyfi á launum og geta feður líka fengið hluta af því. Einnig vildi hann meina að Kúbu menn mættu ferðast að vild til annara landa en stundum væri erfitt fyrir þau að fá visa inn í önnur lönd vegna þess að allir halda að þau ætli sér bara að gerast flóttamenn. En á Kúbu er allt frítt eins og skólar, læknaþjónusta, aðgerðir og tannlæknaþjónusta. Og engir biðlistar. Hann sagðist eiga vin í Danmörku sem kæmi oft til Kúbu og léti alltaf gera við tennurnar í sér þar fyrir lítinn pening. En það er að sjálfsögðu á svörtu þar sem allt svoleiðis á að renna til leiðtogans. Að skilnaði við þennan ræðna félaga okkar sem hitti okkur svo aftur um kvöldið til að heilsa upp á okkur á veitingastað sem hann benti okkur á, þá fengum við heimilisfangið hans og netfang. Þar sem hann sagði að skemmtilegast væri að leigja íbúð ef maður kæmi aftur til Havana og ætlum við að gera það næst !!

Heimleiðin gekk svo vel og og tók ekki nema 8 tíma með stoppi í Kanada, því við fengum góðan meðvind. Eftir situr alveg sérlega skemmtileg ferð, með skemmtilegum ferðafélögum.

2 comments:

Laufey Sif said...

Velkomin heim! ;) Havana heillar rosaleg eftir lesturinn hérna!

Anonymous said...

Ég er nú bara ánægð að heyra að þið séuð komin heim heilu og höldnu og allt hafi gengið vel.
Ég heimta Kúbukvöld þegar ég kem á Suðurlandið;)
Kveðja til allra,
Sigurbjörg