21 November 2005

Kúba 3


Núna er stóra systir búina ad koma kommenta- kerfinu i lag fyrir mig og takk fyrir tad. Enda er strax farid ad skamma mann. Ég sendi reyndar sms til allra en símkerfid er ekki alveg ad virka her, t.d. eru Ogvodafone símar óvirkir hér. GH hefur eitthvad misfarist í sendingum, sorry sis !
En hér var haldin heljarins grillveisla á laugardagskvold fyrir Íslendingana í hótel gardinum og maettu 120 manns. Tad var opinn bar (frír) í 2 tíma fyrir okkur og fóru flestir bara nokkud vel med tad, en alltaf soldid riskí fyrir Íslendinga. Tetta var heilmikil sýning med donsum og song og skemmtum vid okkur vel.
Á sunnudaginn fóru svo flestir Íslendingarnir af hótelinu og á strondina til ad vera restina af vikunni, en vid pontudum allan timann í Havana, sem betur fer. Enda ekkert sólbadsvedur.
Á sunnudagsmorguninn fórum vid svo í skodunarferd í gamlan kirkjugard tar sem oll stórmenni Kúbu frá upphafi eru grafin. Tar eru alger listaverk enda eru tetta svona grafhýsi sem eru í eigu fjolskyldna. Tadan fórum vid í rommverksmidju og fengum ad smakka hinar ýmsu tegundir af rommi. Og komumst ad tví ad romm er ekki bara romm. Alls konar gerdir og sumar eingongu framleiddar fyrir leidtogann med skeggid og vini hans.
Svo fórum vid á Havana Libre hótelid sem var byggt sem Hilton hótel fyrir byltingu og var tjódnýtt eins og allt annad í byltingunni. En Castró og félagar gerdu hótelid ad bakistod eftir innrásina í Havana 1959. Mjog skrýtid ad sjá og myndir af byltingarmonnum um alla veggi . Sídan gegnum vid á National de Cuba hótelid og fengum okkur drykk í gardinum tar. Tad hótel var midstod skemmtana í Karabískahafinu fyrir byltingu og flykktust fraegir Bandaríkjamenn tangad til ad skemmta ser.
Svo gengum vid í gard sem heitir Coppelia og er fraegur fyrir ad vera í fraegri Kúbanskri bíomynd sem heitir "Súkkuladi og jardarber". En tarna er adallega seldur kúlu ís í hellig af litlum ísbúdum . En Castró ákvad ad ís vaeri eitthvad sem allir aettu ad geta veitt sér og framleidir ís sem seldur er í gardinum á spottprís. Tetta var samt frekar mikid sódalegt og menn skófu ísinn úr stórum fotum med skeidum sem skoladar voru í malningarfotum med verulega drullugu vatni. Tannig ad vid haettum ekki á ad auka á magaverkinn.
Vid komum svo heim á hótel og reyndum adeins ad slappa af í hótelgardinum en ekki sást sólin.
Endudum vid daginn med ad fara á veitingastad sem vid létum leigubílstjóra velja handa okkur. Tad gekk ekki vel, tví hann keyrdi okkur á fiskistad tar sem fiskurinn var svo steiktur og seigur ad Unnsteini fannst hann vera kominn í mat til mommu sinnar í Audsholti. Og lifandi tónlist sem var svo hávaer ad ekki var haegt ad tala saman. En vínid slapp samt til, tó svo ad ekki vaeri til hvítvín á fiskiveitingastadnum ( en so vott , tetta er nú Kúba).
I morgun voknudum vid og saum til sólar, vei, vei ! Skelltum okkur í sundfotin og logdumst á bekk í gardinum en sólin skein í svona 10 mínútur tá dró fyrir og alltaf meir og meir tannig ad vid gafumst upp og fórum á markad nidri í bae. Tar vorum vid í svona 15 mín en tá hvessti mjog skyndilega og fór svo ad haugrigna og allir áttu fótum fjor ad launa . Fórum vid undir eitthvad skýli tar sem var seldur bjór í krana og hannserveradur í afsogudum rommfloskum. En bjórinn var alveg óaetur og leyfdum vid honum ad mestu og lobbudum í gegnum hverfi heimamanna og upp á National de cuba hótelid tar sem vid fengum samloku og gódan bjór. Á medan ringdi enn meira .

5 comments:

Anonymous said...

Bið að heilsa Sigrúnu ;-)

Anonymous said...

jæja, eru þið ekki bara búin að vera nógu lengi, bara drífa sig heim, það er leiðinlegt þegar þið eruð í útlöndum.

kv. Bryndís

Anonymous said...

Sæl kæru vinir
Lifum okkur algjörlega inn í þetta hjá ykkur, allt virðist vera eins og fyrir 3 árum þega við vorum þarna, (eins og þetta hefur reyndar verið í 60 ár þarna) nema e.t.v. fleiri íslendingar núna. Eitt skiljum við að vísu ekki, hvernig í ósköpunum þið finnið tíma til að skrifa, við minnust þess ekki að hafa átt eina mínútu í afgang! Jæja, njótið vel og umfram allt njótið tónlistarinnar sem þeir eru frábærir í.
Kveðjur, Hemmi og Arna

Anonymous said...

Búin að finna barnsföður minn????

Anonymous said...

Búin að finna ykkur í flóru bloggara! Fylgjumst með.
Þórunn Jóna og Halli á Selfossi.