Boðað var til árhátíðar aldamótaljósmæðra í Ólafsvík um miðjan maí. Ari og Berit voru gestgjafar og var ljúft og gott að koma til þeirra og njóta gestrisni Ólsara. Farið var í hellaleiðangur í Purkhelli og síðan í leikjaþrautir á Gufuskálum áður en tekið var til við mat og drykk. Eftir svefn og morgunhressingu var farið að Búðum þar sem Hvergerðingurinn Ragnhildur Sigurðardóttir, sem nú býr á Álftamýri, leiddi hópinn um staðinn á Búðum og sagði sögu hans.
Skemmtileg helgi í góðra vina hópi.
No comments:
Post a Comment