25 March 2009

Liverpool ferð




Sigrún þurfti að fara til Manchester á námskeið í ljósmæðrun. Ég skellti mér með sem aðstoðarmaður og ekki var það verra að Liverpool var að spila heimaleik sömu helgi... og við í grenndinni. Eftir tvo daga í Manchester þar sem ég m.a. skoðaði Old Trafford (var búinn að skoða allt annað í borginni). Ákváðum við því að fara yfir til Liverpool eftir námskeiðið og eyða laugardegi og sunnudegi þar. Hápunkturinn var leikur Liverpool og Aston Villa á sunnudeginum sem endaði 5-0 fyrir okkar menn. Frábær skemmtun og ekki skemmdu úrslitin fyrir ánægjunni.

Meira að segja hittum vð Sami Hyypia fyrir tilviljun á pöbb um kvöldið eftir leik. Skemmtileg tilviljun og tók Sigrún mynd af gömlu hafsentunum saman. Skoðuðum við miðborgina og fórum á Bítlasafnið sem var mjög skemmtilegt.

No comments: