02 February 2009

Skíðaferð til Akureyrar


Haldið var norður í land í lok janúar og stefnan sett á skíði. Fundum við þessi fínu skíði af Sigrúnu sem við lánuðum Jóa og steig hann í fyrsta skipi á slík tól í Hlíðarfjalli. Heldur var brösugt til að byrja með og toglyftan óþæg í meðförum. Smá skrámur og hnjask eftir fyrsta daginn en allt hafðist það stórslysalaust og allir skemmtu sér konunglega.

No comments: